NÝ KYNSLÓÐ AF RAIN DROP – CERAMIC VÖRN OG GLJÁI Á EINU AUGNABLIKI!
Rain Drop Ceramic Spray er ný og endurbætt útgáfa af hinni vinsælu Rain Drop-vörulínu frá Soft99. Einstaklega þægilegt efni sem gefur bílnum frábæran gljáa, sterka vatnsfælni og endingargóða vörn með lítilli fyrirhöfn.
Efnið er borið á blautan bíl strax eftir þvott og dreift með örtrefjaklút um leið og bíllinn er þurrkaður. Gerist varla einfaldara!
Nýja formúlan byggir á SiO₂ og virkum síloxönum sem mynda endingargóða, vatnsfælna verndarhúð. Vatn perlar af yfirborðinu, óhreinindi eiga erfiðara með að festast og lakkið fær dýpri lit og fallegan gljáa.
Allt að 5 mánaða ending á lakki og 2 mánuðir á gleri!
Einn 500 ml brúsi af Rain Drop Ceramic Spray dugar á allt að 12 meðalstóra bíla!
Rain Drop Ceramic Spray hentar á fjölmarga fleti bílsins, meðal annars lakk, rúður, spegla, ljós, plast, króm og felgur. Það má einnig nota á viðeigandi plastfleti í innréttingu.
Efnið virkar frábærlega eitt og sér en er líka tilvalið sem viðhaldsefni yfir Fusso Coat, önnur bón og keramískar lakkvarnir.
Helstu kostir
- Allt að 5 mánaða vörn á lakki.
- Allt að 2 mánaða vatnsfælni á gleri.
- Einn brúsi dugar á allt að 12 meðalstóra bíla.
- Mikill gljái og fallegri litadýpt.
- Auðveld notkun á blautan bíl eftir þvott.
- Hentar bæði sem sjálfstæð vörn og viðhaldsefni.
- Má nota á lakk, gler, plast, króm og felgur.
Notkunarleiðbeiningar
- Þvoðu bílinn vandlega og skolaðu öll óhreinindi og sápuleifar af. Láttu yfirborðið vera blautt.
- Hristu flöskuna vel og snúðu úðastútnum í ON-stöðu.
- Úðaðu efninu á blautt yfirborðið. Byrjaðu á rúðunum og farðu síðan yfir lakkið.
- Dreifðu efninu strax jafnt með hreinum, rakadrægum örtrefjaklút og þurrkaðu um leið.
- Á felgur og aðra torvelda fleti er betra að úða efninu fyrst í klútinn.
- Forðastu að bleyta bílinn næstu 12–24 klukkustundirnar til að ná sem bestri endingu.
Athugið: Ekki nota í beinu sólarljósi eða á heita fleti. Ef rákir myndast skal skola örtrefjaklútinn, vinda hann vel og strjúka aftur yfir viðkomandi svæði.
Vöruupplýsingar
Magn: 500 ml
Vörunúmer: 00538
Ending: Allt að 5 mánuðir á lakki og 2 mánuðir á gleri, eftir aðstæðum.
Framleiðandi: Soft99 Japan
Öryggi: Eldfimur vökvi og gufa. Getur valdið augnertingu og syfju eða svima. Haldið frá hitagjöfum og íkveikjuvöldum. Fylgið öryggismerkingum á umbúðum.




