SOFT99 RAIN DROP CERAMIC SPRAY – 500 ML
SOFT99 RAIN DROP CERAMIC SPRAY – 500 ML
2,850 kr. Setja í körfu

SOFT99 RAIN DROP CERAMIC SPRAY – 500 ML

2,850 kr.

NÝ KYNSLÓÐ AF RAIN DROP – CERAMIC VÖRN OG GLJÁI Á EINU AUGNABLIKI!

Rain Drop Ceramic Spray er ný og endurbætt útgáfa af hinni vinsælu Rain Drop-vörulínu frá Soft99. Einstaklega þægilegt efni sem gefur bílnum frábæran gljáa, sterka vatnsfælni og endingargóða vörn með lítilli fyrirhöfn.

Efnið er borið á blautan bíl strax eftir þvott og dreift með örtrefjaklút um leið og bíllinn er þurrkaður. Gerist varla einfaldara!

FOLLOW US ON FACEBOOK

NÝ KYNSLÓÐ AF RAIN DROP – CERAMIC VÖRN OG GLJÁI Á EINU AUGNABLIKI!

Rain Drop Ceramic Spray er ný og endurbætt útgáfa af hinni vinsælu Rain Drop-vörulínu frá Soft99. Einstaklega þægilegt efni sem gefur bílnum frábæran gljáa, sterka vatnsfælni og endingargóða vörn með lítilli fyrirhöfn.

Efnið er borið á blautan bíl strax eftir þvott og dreift með örtrefjaklút um leið og bíllinn er þurrkaður. Gerist varla einfaldara!

Nýja formúlan byggir á SiO₂ og virkum síloxönum sem mynda endingargóða, vatnsfælna verndarhúð. Vatn perlar af yfirborðinu, óhreinindi eiga erfiðara með að festast og lakkið fær dýpri lit og fallegan gljáa.

Allt að 5 mánaða ending á lakki og 2 mánuðir á gleri!

Einn 500 ml brúsi af Rain Drop Ceramic Spray dugar á allt að 12 meðalstóra bíla!

Rain Drop Ceramic Spray hentar á fjölmarga fleti bílsins, meðal annars lakk, rúður, spegla, ljós, plast, króm og felgur. Það má einnig nota á viðeigandi plastfleti í innréttingu.

Efnið virkar frábærlega eitt og sér en er líka tilvalið sem viðhaldsefni yfir Fusso Coat, önnur bón og keramískar lakkvarnir.

Helstu kostir

  • Allt að 5 mánaða vörn á lakki.
  • Allt að 2 mánaða vatnsfælni á gleri.
  • Einn brúsi dugar á allt að 12 meðalstóra bíla.
  • Mikill gljái og fallegri litadýpt.
  • Auðveld notkun á blautan bíl eftir þvott.
  • Hentar bæði sem sjálfstæð vörn og viðhaldsefni.
  • Má nota á lakk, gler, plast, króm og felgur.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Þvoðu bílinn vandlega og skolaðu öll óhreinindi og sápuleifar af. Láttu yfirborðið vera blautt.
  2. Hristu flöskuna vel og snúðu úðastútnum í ON-stöðu.
  3. Úðaðu efninu á blautt yfirborðið. Byrjaðu á rúðunum og farðu síðan yfir lakkið.
  4. Dreifðu efninu strax jafnt með hreinum, rakadrægum örtrefjaklút og þurrkaðu um leið.
  5. Á felgur og aðra torvelda fleti er betra að úða efninu fyrst í klútinn.
  6. Forðastu að bleyta bílinn næstu 12–24 klukkustundirnar til að ná sem bestri endingu.

Athugið: Ekki nota í beinu sólarljósi eða á heita fleti. Ef rákir myndast skal skola örtrefjaklútinn, vinda hann vel og strjúka aftur yfir viðkomandi svæði.

Vöruupplýsingar

Magn: 500 ml

Vörunúmer: 00538

Ending: Allt að 5 mánuðir á lakki og 2 mánuðir á gleri, eftir aðstæðum.

Framleiðandi: Soft99 Japan

Öryggi: Eldfimur vökvi og gufa. Getur valdið augnertingu og syfju eða svima. Haldið frá hitagjöfum og íkveikjuvöldum. Fylgið öryggismerkingum á umbúðum.