Frábært helgartilboð!
Flott detail taska með 6 frábærum vörum á aðeins 9.900,-.
Gildir aðeins til 1 september
Inniheldur:
Glaco QAD – mun styttri tími í ásetningu
Glaco QAD er byltingarkennd vatnsfráhrindandi (hydrophobic) glerhúð sem þú berð á á meðan á venjulegum bílaþvotti stendur. Varan krefst engrar forvinnu eða undirbúnings á glerinu, og hvers kyns leifar eru einfaldlega skolaðar í burtu með sápu sem hefur hlutlaust pH-gildi.

- Undirbúðu yfirborðið: Gakktu úr skugga um að glerið sé alveg þurrt og laust við óhreinindi eða gróf korn (eins og sand, drullu eða fugladrit) sem gætu rispað glerið við ásetningu.
- Bleyttu púðann: Skrúfaðu bláa tappann af, þrýstu flókapúðanum upp að glerinu og kreystu flöskuna létt til að ná efninu út og bleyta púðan vel.
- Berðu efnið á: Dreifðu efninu jafnt yfir glerið með því að fara í kross (beinar línur lárétt og lóðrétt) svo engin horn gleymist.
- Láttu þorna: Bíddu í 1 til 3 mínútur á meðan efnið þornar á glerinu. Þurrktími getur verið breytilegur eftir hita og rakastigi.
- Þvoðu og virkjaðu: Handþvoðu bílinn – þar á meðal glerið sem búið er að meðhöndla – með pH-hlutlausu bílasjampói. Sjampóið jafnar húðina út og fjarlægir umframmagn af efninu á öruggan hátt.
- Skolaðu og þurrkaðu: Skolaðu froðuna mjög vel af með vatni og þurrkaðu yfirborðið eins og venjulega. Vatnsfráhrindingin ætti að sjást strax.
Soft99 Qjutsu Creamy bílasápa.

Nýjasta bíla sápan frá SOFT9
pH hlutlaus
Bílasápa með einstakri, öruggri formúlu. Hún sameinar skilvirkan þvottakraft með mildri, pH-hlutlausri formúlu, þannig að þú getur auðveldlega þvegið bílinn þinn á meðan þú heldur verndandi eiginleikum Soft99 vaxsins eða QJUTSU Quarts coati. Einstaklega notendavænt: það skolast mjög auðveldlega af og þornar ekki á lakkinu, sem gerir þér kleift að vinna rólega og vandlega án þess að flýta þér. Skilur ekki eftir sig rákir eða bletti. Þykk froðan og myntuilmur gera vinnuna ánægjulegri. Virkar frábærlega sem snjófroða.
4X Dekkjahreinsir/gljái

Ótrúlega gott og fljótlegt efni
Hreinsar og dressar dekkin í einni umferð
Sprayið efninu á dekkinu strjúkið yfir með klút
Passið að ekki sé mikil óhreinindi á dekkjunum (t.d. drulla)
Alltaf er gott að strjúka aftur yfir dekkin nokkrum mínútum seinna ef efnið hefur safnast saman við felgur
Olíu Silicon baserað
SOFT99 Luxury Gloss Úða Bón

SOFT99 þróaði nýja gerð af fljótandi vaxi sem miðar að þremur meginþáttum – Gljáa, Dýpt og að yfirborð verði sleipt, , sem er erfitt að finna í hefðbundnum vöruflokkum. Waxið er með þægilegri mangó lykt. Glæsilegur gljái, efni sem er hægt að nota sem viðhaldsvökva-detail spray fyrir vax og er mjög auðvelt að nota. Úða og þurrka til að fá ótrúlegan gljáa!
Notkunarleiðbeiningar:
1. Þvoið bílinn til að fjarlægja ryk, óhreinindi, vatn og aðrar leifar.
2. Hristu flöskuna vel, opnið stút.
3. Spray vökvanum ca. 50 cm svæði á þurru lakki , dreifa úr og þurrka strax af.
* Mælt með því að nota með örtrefja klút til að koma í veg fyrir ójafnt lag.
SOFT99 Wash Mist Innréttingarhreinsir

Hreinsar og ver allt plast, vinyl og gúmmí inni í bílnum. Hentar einnig mjög vel á gler sem og snetrtiskjáinn.
Einfalt í notkun, úðar og strýkur óhreinindi í burt.
Skilur ekki eftir sig ský eða rendur.
Myndar góða vörn og skilur eftir silkimatta áferð.
Sótthreinsandi
SOFT99 Ultrasoft Svampur

QJUTSU Ultrasoft Sponge er japanskur þriggja laga bílaþvottasvampur úr QJUTSU-línunni, hannaður fyrir detailera og sérstaklega mjúkur viðkomu. Efsta lagið drekkur í sig sápuna, þétta miðlagið hleypir lofti í gegn og myndar þykka froðu, og neðsta lagið hleypir engum vökva út — þannig að aðeins froða kemur út um svampinn. Í notkun er bylgjaða hliðin notuð til að bera froðuna á bílinn, og eftir þvott er svampurinn skolaður og látinn þorna til að lengja endingu hans.
Þessar vörur koma svo í vandaðri merktri Classic Detail / SOFT99 tösku.









