Glaco QAD + Qjustu Sápa
Glaco QAD + Qjustu Sápa
3,980 kr. Setja í körfu

Glaco QAD + Qjustu Sápa

3,980 kr.

Til á lager

FOLLOW US ON FACEBOOK

Glaco QAD + QJUTSU Creamy Shampoo – nýja Glaco glerhúðin og söluhæsta bílasápan.

Hér fer saman glæný vara og traustur valkostur í einni söluhæstu sápunni frá Soft99. Nýjasti vörupakkinn frá Soft99 kynnir Glaco QAD glerhúðina, sem er einstaklega fljótleg í ásetningu, ásamt hinni fjölhæfu og auðveldu QJUTSU Creamy Shampoo bílasápu – sem er örugg fyrir allt lakk og fylgir með frítt í þessum pakka!

Glaco QAD – mun styttri tími í ásetningu

Glaco QAD er byltingarkennd vatnsfráhrindandi (hydrophobic) glerhúð sem þú berð á á meðan á venjulegum bílaþvotti stendur. Varan krefst engrar forvinnu eða undirbúnings á glerinu, og hvers kyns leifar eru einfaldlega skolaðar í burtu með sápu sem hefur hlutlaust pH-gildi.

Fyrsta Glaco húðin sem þú getur borið á við bílaþvottinn!

Með því að samþætta ásetningu Glaco QAD inn í þína venjulegu þvottarútínu færðu hámarks þægindi, áreynslulausa notkun og umtalsverðan tímasparnað. Vatnsfráhrindandi áhrifin frá Glaco QAD verða merkjanleg strax við 45 km/klst hraða, sem bætir skyggni í rigningu verulega – sérstaklega við innanbæjarakstur. Húðin veitir allt að 10 vikna vörn og ein flaska dugar til að meðhöndla allt að 10 framrúður.

QJUTSU Creamy Shampoo – bílasápa sem er auðveld í notkun

QJUTSU Creamy Shampoo er þróun á hinu gríðarlega vinsæla Neutral Creamy Shampoo, sem hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá áhugafólki um bílaþrif. QJUTSU sápan sameinar öfluga hreinsigetu og milda formúlu með hlutlausu pH-gildi sem er fyllilega örugg fyrir allar gerðir lakks.

Þvoðu bílinn á þínum eigin hraða

Það er einstaklega þægilegt að vinna með bílasápuna – hún skolast fljótt af og þornar ekki á lakkinu, svo þú getur gefið þér góðan tíma án þess að krefjast flýtiferða. Hún skilur hvorki eftir sig rákir né leyfar. Sleip froðan og þægileg myntulyktin gera bílaþvottinn virkilega ánægjulegan.

Endingartími:10 vikur
Fjöldi ásetninga:x10 framrúður
Innihald:120 ml (QAD), 750 ml (QJUTSU Creamy Shampoo)
Vörukóði:04958 + 10507

Hvernig á að nota Glaco QAD:

  1. Undirbúðu yfirborðið: Gakktu úr skugga um að glerið sé alveg þurrt og laust við óhreinindi eða gróf korn (eins og sand, drullu eða fugladrit) sem gætu rispað glerið við ásetningu.
  2. Bleyttu púðann: Skrúfaðu bláa tappann af, þrýstu flókapúðanum upp að glerinu og kreystu flöskuna létt til að ná efninu út og bleyta púðan vel.
  3. Berðu efnið á: Dreifðu efninu jafnt yfir glerið með því að fara í kross (beinar línur lárétt og lóðrétt) svo engin horn gleymist.
  4. Láttu þorna: Bíddu í 1 til 3 mínútur á meðan efnið þornar á glerinu. Þurrktími getur verið breytilegur eftir hita og rakastigi.
  5. Þvoðu og virkjaðu: Handþvoðu bílinn – þar á meðal glerið sem búið er að meðhöndla – með pH-hlutlausu bílasjampói. Sjampóið jafnar húðina út og fjarlægir umframmagn af efninu á öruggan hátt.
  6. Skolaðu og þurrkaðu: Skolaðu froðuna mjög vel af með vatni og þurrkaðu yfirborðið eins og venjulega. Vatnsfráhrindingin ætti að sjást strax.

Hvernig á að nota Qjutsu Creamy bílasápu.

  • Skolaðu bílinn með vatni til að fjarlægja ryk og laus óhreinindi.
  • Helltu sjampóinu í fötu með vatni (75–100 ml fyrir hverja 10 lítra af vatni) eða settu það beint á blautan svamp. Nuddaðu þar til freyðir og byrjaðu að þvo bílinn ofan frá og niður.
  • Skolaðu bílinn mjög vel og þurrkaðu hann með örtrefjaklút, handklæði eða þrýstilofti.