Hér bjóðum við uppá kennslu hvernig á að fara að því að þrífa bíl með alvöru Detail efnum þannig að þú náir alvöru árangri og endingu.
- Það sem þú munt læra
- Rétta tækni við þvott á bíl (2 fötu tækni)
- Þrif á felgum og dekkjum – Dressing á hjólbarða.
- Notkun á froðusprautu
- Notkun og val á leir/leirhanska (hvernig á að leira og hvers vegna)
- Undirbúningur (prep) og hvernig á að nota alvöru paste bón/sealant þannig að hámarksending náist
- Undirbúningur og ásetning á vatnsvörn á rúðum
- Rétt notkun á microfiber klútum
- Þrif á gleri
- Þrif á vélasal
Staðsetning
Bíldsöfða 16 (inn í portinu)
Mæta í léttum fatnaði (sem má óhreinkast) og þægilegum skóm
Mæta með góða skapið.